Í frí frá samfélagsmiðlum
„Ég er komin með svo mikið nóg af La. Og nóg af lygunum sem fylgja henni [borginni],“ tísti Miley Cyrus á dögunum, alveg tryllt. Tilefni færslunnar var orðrómur þess efnis að hún og unnustinn, Hunger Games-leikarinn Liam Hemsworth, hefðu hætt við fyrirhugað brúðkaup. Tók stúlkan fyrir orðróminn á Twitter og sagðist í kjölfarið ætla að taka sér frí frá samfélagsmiðlum.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem sögur um erfiðleika í sambandi hinnar tvítugu poppstjörnu og 23 ára leikara fara á flug. Fyrir skömmu sást til hans í fylgt leikkonunnar Emmu Watson auk þess sem hann sást yfirgefa Óskars-teiti í fylgt Mad Men-stjörnunnar January Jones.
Samkvæmt heimildum People.com eru vandræði í paradís parsins en unnið að því að bæta úr. „Brúðkaupið er enn í bígerð. Miley og Liam hafa átt í smá vandræðum sem þau eru að vinna úr,“ hefur blaðið eftir ónafngreindum heimildum. Samkvæmt þeim horfir hins vegar allt til betri vegar og getur söngkonan ekki beðið eftir að giftast leikaranum.





