Leiðinleg og ekki kynþokkafull
Jennifer Lawrence finnst út í hött að fólki finnist hún kynþokkafull. Segist hún alla jafna reyna að velja hlutverk sem eru hvað ólíkust henni sjálfri en hún sé fremur leiðinleg.
„Ég leik aldrei persónur sem líkjast mér af því að ég er leiðinleg. Ég myndi ekki vilja sjá [persónu eins og] mig í kvikmynd,“ sagði hinn 22 ára Óskarsverðlaunahafi í viðtali við The Sun á dögunum.
Lawrence segist blessunarlega hafa að mestu sloppið við að leika hefðbundin hlutverk eins og ungum leikkonum bjóðast oft s.s. að leika sætu en vondu stelpuna, ófríðu en almennilegu eða fallegu og fáfróðu stelpurnar.
Spurð að því hvað henni þætti um að hún teldist nú til kyntákna í Hollywood gaf leikkonan lítið fyrir slíkt. „Ég sé mig ekki sem kynþokkafulla enda er það klárlega ekki satt,“ svaraði hún að bragði. Gaf hún einnig lítið út á það að vera orðin stjarna. „Það er fáránlegt, af því að ég sé mig ekki þannig.“ Bætti hún við að síðast um daginn hefði hún sjálf nánast farið hjá sér við að rekast á einhvern leikara úr sjónvarpsauglýsingu.




