Minnast villtrar nætur á Íslandi
Naktar stelpur í kapphlaupi, tómir mini-barir og blóð á veggjum - söngvari Hurts minntist villtrar nætur sveitarinnar á Íslandi í viðtali á dögunum. Og lýsingin er ekki fögur.
„Ég bauð öllum í eftirpartý aftur á hótelið okkar,“ segir Theo Hutchcraft í viðtali við nýjasta tölublað tímaritsins Shortlist. Segir hann þar frá því hvernig gestir hans hafi vaðið á milli herbergja hótelsins og safnað þar saman öllu áfengi úr mini-börum. „Gangarnir voru fullir af berum íslenskum stelpum í kapphlaupi og fólk var kastandi upp út um allt,“ segir söngvarinn og bætir við að þetta hafi verið í miðri viku.
Segist hann hafa vaknað daginn eftir við að þrjár stúlkur sváfu á gólfi herbergis hans og blóð var á veggjum. Komst hann síðar að því að einhver hafði skorið sig á fæti á glerflösku og smurt blóðinu á veggina. „Við eyðilögðum hótelið fyrir slysni og mundum ekki einu sinni eftir því hvernig,“ bætir hann við.
Hurts hélt tónleika hér á landi í Vodafone-höllinni í mars árið 2011. Fréttist af því á sínum tíma að sveitin hefði kunnað afar vel við sig og stundað skemmtanalífið grimmt.
Ísland er reyndar ekki eini viðkomustaður hljómsveitarinnar þar sem meðlimir hennar segjast hafa lent í ýmsu. Ræða þeir Hutchcraft og gítarleikarinn Adam Anderson einnig um Kænugarð í þessu sambandi en sá síðarnefndi segist hafa tekið þátt í kynsvalli með sjö öðrum.
„Maður er eins og barn þegar maður er á tónleikaferðalagi,“ bætir hann við og reynir ekki að fegra myndina. „Manni finnst maður geta gert það sem manni sýnist.“




