Hómer Simpsons leggur ýmislegt á sig þegar hann fer til Íslands í þætti þar sem hljómsveitin Sigur Rós kemur m.a. við sögu. Hómer fær sér t.d. hákarl að borða.
Í þættinum verður fjallað um ferðalag nokkurra persóna í sjónvarpsþættinum til Íslands. Þátturinn segir frá því þegar Homer, Moe, Lenny og Carl kaupa saman lottómiða en Carl stelur honum og flýr til „heimalandsins“, Íslands. Hefst þá eftirför hinna þriggja.
Hómer klæðir sig að hætti heimamanna og kaupir sér lopapeysu. Þeir félagar fara síðan á veitingastað og panta hákarl og hangikjöt.
Þættirnir um Simpsons-fjölskylduna hafa verið framleiddir í 24 ár. Síðasta þáttaröðin verður sýnd frá og með næsta hausti og hafa framleiðendur fullyrt að fleiri þættir verði ekki framleiddir eftir það.