„Höfuð barnsins er að koma út“

Mynd er úr safni og tengist frétt óbeint.
Mynd er úr safni og tengist frétt óbeint. Kristinn Ingvarsson

Kona fæddi óvænt barn við þjóðveg í Michigan í Bandaríkjunum en konan átti ekki að eiga barn sitt fyrr en um miðjan júlí. Eiginmaður konunnar var viðstaddur og gat veitt henni aðstoð. Sagt er frá þessu á fréttavef La Crosse Tribune.

Konan sem heitir Nicole Culwell var í bifreið ásamt manni sínum Matthew Culwell og voru þau á leið á sjúkrahús til skoðunar. Skömmu áður en þangað var komið var ljóst að barn þeirra, sem er stúlkubarn, var  á leið í heiminn. Stöðvaði maðurinn þá bifreiðina og hringdi samstundis á neyðarlínuna eftir aðstoð.

„Hann stóð sig eins og hetja og var rólegur allan tíman,“ segir Nicole og vísar til viðbragða Matthew en sjálf segist hún lítið muna eftir fæðingunni. „En ég man þegar ég hélt á henni í fyrsta sinn og strauk bak hennar.“

Öll símtöl sem berast neyðarlínunni eru hljóðrituð. Þegar Matthew hringdi eftir aðstoð mátti heyra hann segja í upphafi samtals: „Höfuð barnsins er að koma út.“ Á upptökunni má svo síðar heyra hinn nýbakaða föður segja: „Guð minn góður. Barnið er komið út, barnið er komið út.“
Í frétt La Crosse Tribune segir að Matthew Culwell hafi létt mjög þegar hann heyrði grátur dóttur sinnar í fyrsta sinn. Skömmu síðar komu slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn á vettvang og fluttu barn og móður á sjúkrahús til skoðunar. Þeim heilsast vel.
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson