Game of Thrones á Lebowski

Ásrún Ísleifsdóttir í miðið ásamt þeim Sophie Turner (t.v.) og …
Ásrún Ísleifsdóttir í miðið ásamt þeim Sophie Turner (t.v.) og Maisie Williams (t.h.). Instagram/Ásrún Ísleifsdóttir

Vart var þverfótað fyrir Game of Thrones stjörnum á Big Lebowski Bar á Laugaveginum í gærkvöldi, en tökur á þáttaröðinni víðfrægu fara fram hérlendis um þessar mundir.

Þeir sem voru svo heppnir að komast inn á staðinn gátu meðal annars barið þau Sophie Turner, Maisie Williams og Aiden Gillen augum. Þær stöllur Turner og Williams fara með hlutverk Stark-systranna; Sansa og Arya. Aiden Gillen fer hins vegar með hlutverk Lord Petyr Baelish, betur þekktur sem „Littlefinger“.

Ásrún Ísleifsdóttir viðskiptafræðinemi var ein þeirra heppnu og náði mynd af sér með þeim Turner og Williams sem virðast taka frægðinni vel þrátt fyrir að vera aðeins 17 og 16 ára gamlar. „Ég vissi að Game of Thrones yrði á Lebowski svo ég fór og fékk þær til að taka upp myndband fyrir vin minn þar sem þær óskuðu honum til hamingju með afmælið. Þær voru virkilega almennilegar.“ 

Ásrún segir mikið tilstand hafa verið í kringum tökulið þáttanna og ekki verið ætlunina að hleypa öðrum inn en stjörnunum og fylgdarliði þeirra. Fregnir af veru tökuliðsins á barnum hafi þó fljótt spyrjast út og fólki á endanum verið hleypt inn.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Leitaðu nýrra leiða til þess að auðga líf þitt og bæta. Einhver þér eldri getur miðlað þér af reynslu sinni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
3
Kolbrún Valbergsdóttir
4
Sigríður Dúa Goldsworthy
5
Arnaldur Indriðason
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Leitaðu nýrra leiða til þess að auðga líf þitt og bæta. Einhver þér eldri getur miðlað þér af reynslu sinni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
3
Kolbrún Valbergsdóttir
4
Sigríður Dúa Goldsworthy
5
Arnaldur Indriðason