Harmsaga á hvíta tjaldinu

Elma Stefanía Ágústsdóttir og Snorri Engilbertsson fara með aðalhlutverkin í …
Elma Stefanía Ágústsdóttir og Snorri Engilbertsson fara með aðalhlutverkin í Harmsögu í Þjóðleikhúsinu. mbl.is

Framleiðslufyrirtækið ZikZak hefur tryggt sér réttinn á leikritinu Harmsögu eftir Mikael Torfason. Verkið var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu síðasta föstudag.

Leikstjóri verksins verður Þór Ómar Jónsson sem frumsýndi fyrr á þessu ári sína fyrstu kvikmynd, Falskur Fugl, sem byggðist á skáldsögu eftir Mikael Torfason.

„Harmsaga er ótrúlega mögnuð saga og Mikael hefur unnið í þessu verki lengi og handritið er nánast tilbúið,“ segir Þór Ómar Jónsson í tilkynningu.

Hann bætir því við að hann eigi von á því að leikurunum Elmu Stefaníu Ágústsdóttur og Snorra Engilbertssyni verði boðin aðalhutverkin.

„En auðvitað er það sagt með þeim fyrirvara að ekki er búið að ráða í nein hlutverk eða ræða við leikara. Kvikmyndahandritsskrifin hafa verið styrkt af Kvikmyndamiðstöð Íslands og nú er handritið að komast á það stig að hægt er að fara að vinna í fjármögnun,“ segir Þór Ómar enn fremur.

Það eru þau Þórir Snær Sigurjónsson og Nanna Kristín Magnúsdóttir sem framleiða kvikmyndaútgáfu Harmsögu fyrir hönd ZikZak. 


 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant