Fyrirtækið 3D Börn getur breytt 3D-sónarmyndum af ófæddum fóstrum í skúlptúra í raunstærð fyrir tæpar 70 þúsund krónur. Skúlptúrinn kemur í fallegri gjafaöskju sem er samt óþægilega lík lítilli líkkistu.
Samkvæmt heimildum vefsíðunnar Elite Daily sendir fólk fyrirtækinu afrit af myndunum sem það fær í sónarnum, og fyrirtækið býr til eftirlíkingu af fóstrinu.
Í stað þess að sýna vinum og vandamönnum myndir af ófæddu barni er nú hægt að sýna barnið sem er að vaxa í leginu á móðurinni í raunstærð.
Ef þig langar ekki að eignast börn getur þú samt pantað fóstur sem er sniðið að þínum óskum. Það kemur í þremur stærðum og húðlit.