Bieber með „slæmu stúlkunni með stóra hjartað“

Bieber á ströndinni í Panama ásamt Jeffries. Myndin er sögð …
Bieber á ströndinni í Panama ásamt Jeffries. Myndin er sögð tekin í dag. Ljósmynd/Twitter

Nú berast af því fregnir að söngvarinn ungi, Justin Bieber, sé flúinn til Panama. Þar baði hann sig á ströndinni umkringdur fögrum, fáklæddum fljóðum. 

Ímynd Biebers hefur heldur betur umturnast á örfáum dögum. Í vikunni var hann handtekinn, grunaður um ölvun við akstur. Ekki er þó víst að það standist skoðun því samkvæmt fréttum Miami Herald var áfengismagn í blóði hans ekki mikið.

En í kvöld hafa birst myndir af hinum 19 ára gamla Bieber að sóla sig á Punta Chame-ströndinni í Panama. Einnig hafa birst myndir af honum á flugvellinum þar í landi. 

Á einni myndinni sést fyrirsætan Chantel Jeffries við hlið hans sem heimildarmenn Mail Online segja „slæma stúlku með stórt hjarta“. Ástæðan er sú að stúlkan ku hafa verið handtekin fyrir að stinga vin sinn í handlegginn. Og fyrir glæfraakstur.

Frétt Mail Online.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson