Scarlett Johansson þunguð?

Scarlett Johansson með styttuna sem hún fékk á Cesar verðlaunahátíðinni …
Scarlett Johansson með styttuna sem hún fékk á Cesar verðlaunahátíðinni í París á föstudagskvöldið EPA

Bandaríska leikkonan Scarlett Johansson á von á barni með unnusta sínum, Frakkanum Romain Dauriac, samkvæmt fréttum helstu slúðurmiðla. Sex mánuðir eru síðan parið opinberaði trúlofun sína.

Samkvæmt E! News er von á barninu í ágúst og samkvæmt E! hafa fregnirnar fengist staðfestar úr ýmsum áttum. Bendir E! á að Johansson hafi lýst því yfir í viðtölum að hana dreymi um að stofna til fjölskyldu.

„Ég myndi vilja eignast mína eigin fjölskyldu, það væri yndislegt,“ sagði Johansson í viðtali við Daily Mail í desember. „Þeir segja að það sé aldrei rétti tíminn og ég er viss um að það er rétt en ég held að þú verðir að gera ráð fyrir því eins og öðru,“ bætti hún við í viðtalinu.

Í  viðtali við Good Morning America nýverið sagðist leikkonan ekki vera á leið í hjónaband og enginn slíkur undirbúningur væri í gangi en hún var áður gift leikaranum Ryan Reynolds.

Scarlett Johansson og Romain Dauriac
Scarlett Johansson og Romain Dauriac EPA
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant