Veit ekki hver Kim Kardashian er

Söngkonan Mariah Carey.
Söngkonan Mariah Carey. mbl.is/EPA

Nick Cannon, eiginmaður söngkonunnar Mariuh Carey, vill meina að eiginkona hans hafi ekki hugmynd um hver raunveruleikastjarnan Kim Kardashian sé. Cannon sagði frá þessu eftir að hafa viðurkennt að hafa sængað hjá raunveruleikastjörnunni.

Cannon var í viðtali hjá Howard Stern á dögunum þar sem hann sagði að Carey þekkti ekki raunveruleikastjörnuna. „Hún veit ekki einu sinni hver Kim Kardashian er, af því að hún er ekki að velta sér upp úr slíku,“ sagði Cannon.

Athugasemd Cannon um Carey kom viku eftir að hann sagðist í útvarpsþætti hafa verið í sambandi við Kardashian.

Cannon sagði eftir viðtalið að Carey hefði ekki verið sérstaklega ánægð með að Cannon væri að tala um einkalíf sitt í viðtalinu, en bætti við að hjónabandið væri betra en nokkurt samband sem hann hefði verið í.



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant