Ákveðið hefur verið að framleiða að minnsta kosti tvær þáttaraðir til viðbótar af Game of Thrones. Nú er hafin sýning á fjórðu þáttaröðinni sem HBO framleiðir.
Fyrsti þáttur fjórðu þáttaraðar var frumsýndur í Bandaríkjunum á sunnudag. Enginn þáttur sem sýndur hefur verið á HBO hefur fengið jafn mikið áhorf í sjö ár. 6,6 milljónir manna horfðu á frumsýninguna.
Metið á þó enn lokaþátturinn af The Sopranos sem sýndur var árið 2007. Á hann horfðu 11,9 milljónir manna, samkvæmt frétt Reuters.
Meðal áhorf á hvern þátt af Game of Thrones er 14,4 milljónir en þá er um uppsafnað áhorf að ræða, sum sé alla þá sem sjá hvern þátt, í frumsýningu og síðar.