Langar að fjölga sér með unnustunni

Leikarinn Johnny Depp og leikkonan Amber Heard.
Leikarinn Johnny Depp og leikkonan Amber Heard. mbl.is/AFP

Leikarinn Johnny Depp viðurkenndi á dögunum að hann langaði að eignast börn með unnustu sinni Amber Heard.

Í samtali við The Mirror virðist Depp opinn fyrir því að fjölga sér með unnustunni.

„Að eignast fleiri börn er ekkert mál fyrir mig – Heard ætti að hafa tækifæri til þess að eignast börn ef hana langar. Við skulum alveg vera með það á hreinu að æfingarnar til þess að búa til barn eru skemmtilegar og þetta er allt saman dásamlegt,“ sagði Depp.

Nú þegar á Depp 12 ára gamlan son og 14 ára gamla dóttur.

Leikarinn skildi við móður þeirra Vanessu Paradis árið 2012, eftir 14 ára samband. Hann og Heard hittust fyrst við tökur á kvikmyndinni The Rum Diaries.

Þau voru að hittast í tvö ár áður en að sambandið var gert opinbert á síðasta ári.

Þrátt fyrir að Depp hafi fundið hamingjuna í örmum Heard er samband hans og fyrrverandi eiginkonu hans náið.

„Paradis og mér kemur vel saman. Það er ekkert skrítið í gangi, enginn gremja – lífið bara gerist og við eyddum dásamlegum 14 árum saman,“ sagði Depp.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant