Draumur raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian og rapparans Kanyes Wests um að láta pússa sig saman í Frakklandi verður mögulega ekki að veruleika.
Ástæðan er víst smáa letrið sem hvorki Kim né Kanye áttuðu sig á. Nú eru 39 dagar í brúðkaupið, en samkvæmt smáa letrinu verða þau að hafa búið í Frakklandi í allavega 40 daga áður en þau fá að gifta sig þar í landi.
„Það er ekki hægt að veita undanþágu frá þessum reglum,“ sagði franska sendiráðið í Washington DC.
Samkvæmt heimildum Heat þarf parið að búa í París í 40 daga og þá er ekki nóg að Kanye West eigi íbúð þar.
„Kim var óhuggandi. Hún vill ekki að brúðkaupið frestist um einn dag og hún er búin að ákveða að gifta sig í París,“ sagði heimildarmaður Heat.