Lindsay Lohan missti fóstur

Lindsay Lohan.
Lindsay Lohan. mbl.is/AFP

Leikkonan Lindsay Lohan sagði frá því í lokaþætti raunveruleikaþáttarins Lindsay í gær að hún hún hefði misst fóstur. Hún sagði ekki frá því hversu langt langt á leið hún var komin er þetta gerðist eða hver hefði verið faðirinn. Hins vegar sagði hún þetta hafa gerst nýlega og því hafi hún m.a. þurft að hætta tökum á raunveruleikaþættinum um tíma. 

Lohan er 27 ára gömul. Hún lauk fíknimeðferð á Betty Ford stöðinni fyrir nokkru og hóf í kjölfarið að gera raunveruleikaþætti um líf sitt.

„Enginn veit þetta, en ég missti fóstur og þurfti að taka mér frí frá tökum,“ sagði Lohan en fjallað er um málið í frétt á vef New York Daily News.

Lohan sagði þetta hafa verið erfiða reynslu. „Ég gat ekki hreyft mig, ég var veik,“ sagði hún. „Andlega þá hefur þetta mjög mikil áhrif.“

Þættirnir um líf Lohan eru sýndir á sjónvarpsstöðinni OWN, sem Oprah Winfrey rekur. Búið er að ákveða að ekki verði framleiddir fleiri þættir en áhorfið hefur verið mjög lítið.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson