Alkólhól í púðurformi á markað

Hægt verður að blanda sér kokteil á einfaldan hátt með …
Hægt verður að blanda sér kokteil á einfaldan hátt með púðrinu. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Bættu bara við vatni og hrærðu. Alkóhól í púðurformi er það nýjasta frá bandaríska áfengisframleiðandanum Lipsmark og kemur í sex mismunandi útfærslum.

Púðrinu á að blanda út í vatn þannig að útkoman verður annað hvort romm eða vodka. Í tilkynningu frá framleiðandanum segir að jafnvel sé hægt að sáldra púðrinu yfir mat. Þá er fyrirhugað að hefja framleiðslu á öðrum tegundum þannig að úr komi til dæmis Mojito-, Margarítu- eða Cosmopolitan kokteill.

Púðrið hefur hlotið samþykki frá Tóbaks- og áfengisráði Bandaríkjanna en framleiðandinn á eftir að fá einkaleyfisrétt fyrir framleiðslunni.

Framleiðandinn vonast til þess að áfengispúðrið komi í verslanir með haustinu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson