Þorir þú að vera fatlaður?

Mynd frá lokahátíð sumarbúðanna í Reykjadal.
Mynd frá lokahátíð sumarbúðanna í Reykjadal. Ernir Eyjólfsson

Nemendur í MPM-námi í Háskólanum í Reykjavík standa fyrir firmakeppni til styrktar Reykjadal. Firmakeppnin fer fram á morgun, sumardaginn fyrsta, og stendur yfir frá 13.00 til 17.00 í Laugardalshöllinni. 

Keppt verður í tveimur greinum, hjólastóla-spretti og hjólastólahandbolta. Kynnir verður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir en Adolf Ingi Erlingsson og Sigurbjörn Árni Arngrímsson sjá um að lýsa keppninni. Meðal þátttakenda verða lið frá fyrirtækjunum Össuri, Norðuráli og Landsbankanum. Enn er opið fyrir skráningu og hvetjum við fyrirtæki eindregið til þess að gera sér glaðan dag með samstarfsfélögum og fjölskyldum og leggja um leið starfi í þágu fatlaðra barna og ungmenna lið.

Sannkölluð hátíðarstemning í Höllinni

Solla stirða mun líta inn ásamt Hvata hvolpi lukkudýri Reykjadals. Þá munu þekktir handboltakappar jafnvel láta sjá sig auk fleiri góðra gesta.

Boðið verður upp á leiktæki og andlitsmálun fyrir börnin auk þess sem gestum og gangandi gefst m.a. kostur á að prufa hjólastóla.

Söfnunin þáttur í náminu

Að söfnuninni standa sex meistaranemar í verkefnisstjórnun við Háskólann í Reykjavík. Söfnunin er hluti af áfanga þar sem nemendunum er falið að skipuleggja og framkvæma raunhæft verkefni sem á að þjóna samfélaginu á einhvern hátt.

Allur ágóðinn til Reykjadals

Allur ágóði söfnunarinnar mun renna til Reykjadals. Í Reykjadal rekur Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra sumar- og helgardvöl fyrir börn og ungmenni. Meginmarkmið Reykjadals er að þau börn sem ekki geta sótt aðrar sumarbúðir, vegna sérþarfa sinna, hafi kost á sumardvöl, þar sem þau geta notið lífsins á eigin forsendum.Í Reykjadal koma árlega um 200 börn og ungmenni alls staðar að af landinu og á þjónustan sér enga hliðstæðu hér á landi.

Allir geta lagt málefninu lið

Fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem ekki sjá sér fært að taka þátt í mótinu bendum við á reikning 0549-26-10 kt.630269-0249 og söfnunarnúmerin:

902 0010 –> 1000 kr.

902 0030 –> 3000 kr.

902 0050 –> 5000 kr.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant