Pippa Middleton greinir frá því hvar brúðarmeyjarkjóll hennar úr brúðkaupi konungshjónanna Vilhjálms Bretaprins og Katrínar Hertogaynju af Cambridge sé í dag, að því er vefsíða Yourtango greinir frá.
Kjólinn segir hún hafa legið inni í fataskáp ónotaðan síðan brúðkaupið átti sér stað árið 2011.
Kjóllinn vakti töluvert mikla athygli á sínum tíma en í viðtali við Today Show segir Pippa að kjóllinn átti ekki að vekja neina sérstaka athygli og að hún hafi valið frekar látlausan kjól.
Hún segir einnig að fjölskylda hennar hafi litið á brúðkaupið sem venjulegt fjölskyldubrúðkaup og segist hafa áttað sig á því eftirá af hvaða stærðargráðu brúðkaupið hafi verið.