Illdeilur á milli Kim Kardashian og Katie Couric virðast vera á enda þar sem þær eyddu þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna saman, að því er vefsíða Daily Mail greinir frá.
Móðir Kim Kardashian, Kris Jenner, deildi mynd á Instagram þar sem þær stöllur sjást saman ásamt fyrirsætunni Christie Brinkley og vini þeirra Shelli Azoff.
Kim Kardashian kallaði Katie Couric tvísýna í ágúst á síðasta ári en Couric sagði aftur á móti í viðtali ekki skilja hvers vegna Kardashian fjölskyldan væri svona fræg og að hún teldi það aðeins vera táningsstelpur sem horfðu á Kardashian raunveruleikaþáttinn.
Þegar dóttir Kim Kardashian og Kanye West, North West, fæddist sendi Katie Couric þeim gjöf eða náttföt á litlu stelpuna en raunveruleikastjarnan svaraði fréttakonunni með því að birta mynd af gjöfinni á Instagram og skrifa undir myndina að hún hataði falskt fjölmiðlafólk sem þættir vera vinir og ráðlagði henni að gefa henni ekki gjafir ef hún ætlaði að tala illa um Kardashian fjölskylduna.
Katie Couric baðst afsökunar á að hafa sært raunveruleikastjörnuna, sagðist aldrei hafa hitt hana en teldi hana góða manneskju. Kim Kardashian hafi hins vegar ekki tekið vel í afsökunarbeiðnina.
Þær deilur virðast hins vegar allar á enda þar sem Kardashian og Couric sjást saman á mynd sem Kris Jenner deildi.