Vill ástarsenu með Ryan Gosling

Leikkonan Gillian Anderson úr X-files-þáttunum.
Leikkonan Gillian Anderson úr X-files-þáttunum. mbl.is/AFP

Leikkonan Gillian Anderson segist vera skotin í Ryan Gosling, að því er Glamour-tímaritið greinir frá.

Gillian Anderson segir að hún hefði ekkert á móti því að leika í ástarsenu á móti Ryan Gosling en hún segist oft hafa heyrt að um leið og hann gangi inn í herbergi geti fólk ekki einbeitt sér að öðru en honum.

Hin 45 ára leikkona telur Ryan Gosling hafa ákveðin áhrif á fólk sem fáir aðrir hafi. Sem dæmi um aðra sem hafa þessi áhrif nefnir hún Bradley Cooper og Tom Hardy.

Í viðtali við Glamour talaði leikkonan einnig um feminískar skoðanir sínar og sagði að samfélagið væri orðið mun flóknara en áður vegna þess að konur væru framar körlum á alla vegu. 

„Ég tel það flóknasta við lífið í dag vera að menn hafa ekki enn náð okkur konunum,“ segir leikkonan.  

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson