Ætlaði aldrei að giftast

Leikkonan Mila Kunis.
Leikkonan Mila Kunis. mbl.is/AFP

Mila Kunis segist alltaf hafa verið þeirrar skoðunar að hún myndi ekki gifta sig, að því er W Magazine greinir frá.

Ashton Kutcher og Mila Kunis munu ganga í það heilaga í lok þessa árs en í viðtali við W Magazine segir leikkonan að alveg frá tólf ára aldri hafi hún sagt foreldrum sínum að hún myndi aldrei gifta sig.  Hins hafi aðstæður breyst og í dag vilji hún gifta sig því hún hafi fundið ástina í lífi sínu.

Parið vill gifta sig í leyni með aðeins fjölskyldu og nánustu vini viðstadda. 

Mila Kunis og Ashton Kutcher eiga von á sínu fyrsta barni saman í október og ætlar leikkonan að taka sér hlé frá vinnu í kjölfar barneignarinnar.

„Ég hef aldrei viljað vera manneskja sem hefur bara viðskipti á heilanum.  Fyrir mér hefur þessi vinna alltaf verið áhugamál sem varð að stórkostlegum starfsferli en ég lifi ekki fyrir leiklistina“ segir leikkonan um leiklistarferil sinn.

Asthon Kutcher og Mila Kunis byrjuðu saman árið 2012 rétt eftir að hann og Demi Moore hættu saman árið 2011.

Skilnaður Demi Moore og Ashton Kutcher tók gildi í október á síðasta ári og stuttu eftir að hann gekk í gegn bað hann Milu Kunis.

Mila Kunis og Ashton Kutcher kynntust árið 1998 við tökum á sjónvarpsþáttunum That 70s Show.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson