Högnuðust vel á sölu húss

Ellen Degeneres og Portia de Rossi.
Ellen Degeneres og Portia de Rossi. mbl.is/AFP

Ellen DeGeneres og eiginkona hennar, Portia de Rossi, stórgræddu á sölu á húsi sínu sem þær keyptu fyrir stuttu, að því er New York Daily News greinir frá.

Húsið sem um ræðir kallast The Brody House og er staðsett í Los Angeles í Kaliforníu. Á sölunni högnuðust þær um 15 milljóni bandaríkjadollara en þær ákváðu að selja húsið fyrir um hálfu ári. Húsið keyptu þær á 40 milljónir bandaríkjadollara en það seldist fyrir 55 milljónir bandaríkjadollara.

Sean Parker heitir sá sem keypti húsið en hann er einn stofnandi fyrirtækisins Napster. Hann bauð 55 milljónir bandaríkjadollara í húsið.

The Brody House samanstendur af níu svefnherbergjum. Fyrir hagnaðinn af sölunni keypti leikaraparið tvær íbúðir í Beverly Hills fyrir 16 milljónir bandaríkjadollara og áætla að sameina íbúðirnar tvær.

Til stóð að byggja spa í The Brody House fyrir um 35.000 bandaríkjadollara þar sem þær ætluðu meðal annars að byggja um fimm metra langan nuddpott.

Portia de Rossi og Ellen DeGeneres hafa verið giftar í sex ár og eiga fyrir sex herbergja hús í Montecito í Santa Barbara. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson