Vilja giftast á árinu

Angelina Jolie og Brad Pitt.
Angelina Jolie og Brad Pitt. mbl.is/AFP

Angelina Jolie og Brad Pitt hyggjast gifta sig áður en nýtt ár gengur í garð, að því er E! News greinir frá.

Heimildir herma að parið vilji gifta sig á heimili sínu í Suður-Frakklandi. Enn er ekki komin dagsetning á brúðkaupið en þau vonast til að gifta sig seint á þessu ári eða í byrjun næsta árs.

Þá vilja þau ekki hafa marga gesti viðstadda, heimildarmaður sagði jafnvel ekki fleiri en 22 gesti.

Angelina Jolie og Brad Pitt vildu hafa gift sig fyrr en hafa staðið í breytingum á heimili sínu og því var brúðkaupinu frestað. Þau trúlofuðust árið 2012 og eiga saman sex börn eða þau Maddox, Pax, Zahara, Shiloh, Vivienne og Knox.  

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson