Hitti ást lífs síns á HM

Kólumbíska söngkonan Shakira mun syngja á Maracana-leikvanginum í kvöld áður en úrslitaleikur HM hefst. Þetta er í þriðja skiptið sem hún kemur fram á úrslitaleiknum á HM. 

Hún segir að fótboltinn hafi breytt lífi sínu. „Ég mun aldrei gleyma því þegar ég hitti ást lífs míns á HM.“

Shakira og spænski varnarmaðurinn Gerard Pique kynntust þegar HM-lagið 2010 „Waka Waka - Time for Africa“ var kynnt og nú eiga þau saman átján mánaða son. „Ef það væri ekki fyrir HM væri sonur minn Milan ekki til.“

Í kvöld syngur hún HM-lagið í ár, „La La La“, ásamt brasilíska tónlistarmanninum Carlinhos Brown.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson