Giftist kærastanum

Cheryl Cole.
Cheryl Cole. mbl.is/AFP

Cheryl Cole giftist kærasta sínum til þriggja mánaða, að því er vefsíða The Guardian greinir frá.

Söngkonan var nýverið rekin úr starfi sínu sem dómari í amerísku X factor-þáttunum og þótti miður skemmtilegt hvernig staðið var að brottrekstrinum en ekki hefur verið gefið upp opinberlega hvers vegna hún var rekin.

Cheryl Cole hélt því heim til Englands eftir að hún missti vinnuna og hefur nú gifst kærasta sínum, Jean-Bernand Fernandez-Versini, en hann er franskur veitingastaðaeigandi.

Söngkonan staðfesti fréttirnar í gegnum Instagram þar sem hún birti mynd af fallegum trúlofunarhring og giftingahring og skrifaði undir myndina að hún og Jean-Bernand hefðu látið gefa sig saman í leynilegri athöfn hinn 7. júlí síðastliðinn.

Hin 33 ára stjarna opinberaði samband þeirra tveggja á Cannes-kvikmyndahátíðinni í maí síðastliðnum og stuttu eftir það flutti Jean-Bernand inn til hennar í stórhýsi hennar í Bretlandi.

Cheryl Cole hefur áður verið gift enska fótboltakappanum Ashely Cole en þau skildu árið 2010.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant