Rihanna djammaði með Þjóðverjunum

„Ég snerti bikarinn, hélt á bikarnum, kyssti bikarinn og tók selfie með bikarnum. Hvernig hljómar þinn „bucket list“, félagi? Þetta skrifaði söngkonan Rihanna á twittersíðu sína í gærkvöldi eftir að hún hafði birt myndir af sér umkringdri þýsku leikmönnunum. 

Það hefur ekki farið á milli mála að Rihanna hefur mikinn áhuga á heimsmeistaramótinu. Hún hefur verið dugleg á samfélagsmiðlum að tjá sig um mótið, og þá sérstaklega þýska liðið. Er það sér í lagi framherjinn markheppni Miroslav Klose sem er í uppáhaldi hjá henni. 

Í gær náði gleðin svo hámarki þegar Þjóðverjar urðu heimsmeistarar. Rihanna var ekki langt undan og kíkti á þýsku leikmennina og tók myndir af sér með þeim. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson