Kylie Minogue komst í gegnum krabbamein með því að vera sjálfselsk.
Söngkonan kom fram í viðtali við 60 mínútur um krabbameinsbaráttuna en hún missti hárið í krabbameinsmeðferð. Þá segir hún það hafa verið kraftaverki líkast þegar hár hennar óx aftur.
Kylie Minogue segir vini sína hafa ráðlagt sér að verða sjálfselskari, en viðurkennir að hún sé alls ekki sjálfselsk týpa. Það hafi hins vegar virkað vel fyrir að hana að einbeita sér meira að sjálfri sér.