Kemst yfir sorgina með vinnu

Mick Jagger og L'Wren Scott.
Mick Jagger og L'Wren Scott. mbl.is/AFP

Söngvarinn Mick Jagger segir að vinna hafi hjálpað sér að komast yfir dauða L'Wren Scott, að því er US TV greinir frá.

Lífsförunautur Jaggers til margra ára lést í mars á þessu ári er hún framdi sjálfsmorð. Hann segist hafa náð að halda sér á jörðinni með því að stunda áfram tónleikaferðalög og koma fram.

Hann hefur þá verið að vinna í kvikmyndinni Get On Up sem fjallar um líf James Browns og segir hann það einnig hafa hjálpað við missinn.

Þetta er í fyrsta skipti sem söngvarinn ræðir dauða Scott en stuttu eftir atburðinn sagðist hann eiga erfitt með að skilja hvernig ástkona hans og besti vinur gat bundið enda á líf sitt á þennan sorglega hátt.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant