Sást með nýrri konu

Harry Bretaprins.
Harry Bretaprins. mbl.is/AFP

Harry Bretaprins hefur sést með nýrri konu, að því er dagblaðið The Sun greinir frá.

Harry hefur verið einhleypur í um tvo mánuði eftir að slitnaði upp úr sambandi hans og Cressidu Bonas.

Nú síðast sást hann með hinni 25 ára gömlu Camillu Thurlow á næturklúbbi í London. Thurlow starfar fyrir góðgerðasamtökin Halo Trust, sem móðir Harry, Díana prinsessa, vann mikið fyrir áður en hún lést. Samtökin beita sér fyrir hreinsun jarðsprengja á stríðshrjáðum svæðum og gerðist Harry verndari þeirra í fyrra.

Heimildarmaður sagði þau hafa kysst oftar en einu sinni en þau tvö væru ekki í alvarlegu sambandi heldur hefðu aðeins verið úti að skemmta sér.

Bretaprins var á næturklúbbnum Tonteria ásamt vinum sínum en vinur hans Guy Pelly er eigandi klúbbsins. Camilla Thurlow er fyrrverandi Ungrú Edinborg.

Ekki er talið að annað rómantískt ævintýri sé á döfinni strax hjá Harry prinsi en hann hefur hins vegar verið í sambandi við fyrrverandi kærustu sína, Caroline Flack, síðan hann hætti með Bonas. Flack er hins vegar í sambandi með tónlistarumboðsmanninum Jack Street.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson