Eins og fjölskylda

Hljómsveitin One Direction.
Hljómsveitin One Direction. mbl.is/AFP

Hljómsveitarmeðlimir One Direction telja sambandinu sín á milli svipa til fjölskyldu, að því er tímaritið TOTP greinir frá.

One Direction samanstendur af þeim Harry Styles, Niall Horan, Liam Payne, Zayn Malik og Louis Tomlinson en þeir þykjast virkilega heppnir að hafa náð að mynda svona góðan hóp á aðeins þremur árum.

Þeir séu ekki aðeins vinir heldur sé samband þeirra meira eins og þeir séu fjölskylda.

One Direction urðu frægir eftir að hafa komið fram í sjónvarpsþáttunum X Factor árið 2010 og hafa vinsældir þeirra vaxið gífurlega síðan.

Getgátur hafa verið uppi um að einn hljómsveitarmeðlimanna, Harry, ætli að stofna til sólóferils en hann neitar því og segist ætla að vera með hljómsveitinni eins lengi og hægt er. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson