Gat ekki sofið vegna froska

Ariana Grande.
Ariana Grande. mbl.is/Wikipedia

Ariana Grande segist ekki geta sofið vegna hávaða í froskum fyrir utan hús hennar, að því er vefsíða MTV greinir frá.

Vandamálið stafar af því að froskarnir eru á mökunartímabili og gefa frá sér hávær hljóð til að draga til sín maka.

Söngkonan deildi stöðuuppfærslu á Twitter um ástandið en sagðist fljótlega hafa fundið ágæta lausn; hún hlustaði á róandi hljóð í snjallsímanum sínum til að reyna að útiloka hávaðann.

Ariönu Grande hefur verið líkt við Miley Cyrus vegna þess hvernig hún byrjaði feril sinn en Grande byrjaði sinn feril sem leikkona í Nickelodeon-sjónvarpsþáttunum Victorious áður en hún fór út í tónlistina. Cyrus hóf feril sinn einnig sem leikkona í sjónvarpsþáttunum Hannah Montana áður en hún varð söngkona.

Grande er líkingunni ósammála og segir óþarfa samanburð á milli stjarnanna allt of mikinn. Þá segist hún einnig vera að venjast frægðinni og að hún geti ekki lengur farið út úr húsi ómáluð og með ógreitt hár.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant