Ellen DeGeneres gefur áfengi upp á bátinn, að því er tímaritið OK! greinir frá.
Leikkonan og þáttastjórnandinn ákvað að hætta að drekka vín vegna þess að eiginkona hennar Portia de Rossi fór í áfengismeðferð í maí á þessu ári. Hún hafði barist við alkóhólisma um tíma. Ellen DeGeneres hefur nú ákveðið að hvíla sig á víninu til að styðja við bakið á sinni heittelskuðu í baráttunni við Bakkus.
Að sögn heimildarmanns elskar DeGeneres að drekka vín en hún getur ekki látið það eftir sér núna. Allavega ekki á meðan De Rossi er að komast á réttan kjöl.
Portia de Rossi og Ellen DeGeneres giftu sig árið 2008. Árið 2000 lenti de Rossi inni á spítala og fór í meðferð vegna átröskunar. Þá var þyngd hennar komin niður í 37 kíló.