Heimsmet fyrir flest Hómer-húðflúr

Skjáskot af Twitter-síðu heimsmetabókarinnar.
Skjáskot af Twitter-síðu heimsmetabókarinnar. Twitter

Hinn 27 ára gamli Lee Weir skráði sig á spjöld sögunnar í vikunni þegar hann varð sá einstaklingur sem er með flest Homer Simpson húðflúr. Weir fékk heimsmetið skráð í Heimsmetabók Guinness.

Alls er Weir með 41 húðflúr af Hómer, en heimilisfaðirinn frægi úr teiknimyndaþáttunum um Simpson-fjölskylduna er í mismunandi ástandi í hverju flúri.

Í frétt Daily Mirror af málinu segir Weir að hann hafi ákveðið að fá sér húðflúrin vegna þess að í æsku var honum bannað að horfa á fjölskylduna gulu í sjónvarpinu.

Raunar segir Weir að faðir sinn sé Ned Flanders holdi klæddur, en Flanders er þekkt persóna úr þáttunum sem hefur boð og bönn í hávegum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant