Kýldi fyrrverandi vinkonu sína

Katie Price.
Katie Price. Ljósmynd/Instagram

Fyrrverandi Glamour-fyrirsætan, Katie Price, segist hafa kýlt Jane Pountney í andlitið, að því er dagblaðið The Sun greinir frá.

Katie Price kýldi fyrrverandi vinkonu sína, Jane Pountney, þegar hún komst að framhjáhaldi hennar og eiginmanns síns, Kieran Hayler.  

Hún segist hafa verið svo reið og kýlt hana það fast að hálf framtönn Jane Pountney hafi brotnað. Hún hafi þá rifið í hárlengingar hennar og kýlt hana sundur og saman en segist ekki muna vel eftir öllu atvikinu þar sem hún hafi verið svo reið.

Katie Price segir Jane Pountney ekki hafa beðist afsökunar á framhjáhaldinu en hún kom að henni og eiginmanni sínum, Kieran Hayler, að kyssast á strönd þegar þau voru í fríi í Afríku.

Hún segir það hafa verið mjög dimmt þegar hún kom að þeim tveimur en þegar hún nálgaðist ströndina sá hún tvær manneskjur á milli sólarbekkjanna. Hún hafi þá stoppað í hálfa mínútu og horft á bestu vinkonu sína kyssa eiginmann hennar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson