Réttarlæknir hefur staðfest að Peaches Geldof, dóttir tónlistarmannsins Bobs Geldofs, hafi látist úr of stórum skammti af heróíni. Auk heróíns fannst í líkama Peaches kódín, meþadón og morfín. Peaches fannst látin á heimili sínu 7. apríl síðastliðinn.
Peaches fór í meðferð til að vinna bug á vímuefnavanda sínum í nóvember síðastliðnum og tókst að halda sig frá heróíni allt fram í febrúar á þessu ári. Á heimili hennar fundust um sjö grömm af mjög hreinu heróíni auk sprautunála.
Móðir Peaches, Paula Yates, lést einnig eftir ofneyslu heróíns. Þá var Peaches ellefu ára.