Vilja ekki dekra soninn

Georg Bretaprins varð eins árs í gær.
Georg Bretaprins varð eins árs í gær. mbl.is/AFP

Vilhjálmur Bretaprins segist ekki vilja ofdekra Georg Bretaprins, að því er Us Magazine greinir frá.

Vilhjálmur Bretaprins og Katrín hertogaynja af Cambridge vildu ekki ofgera hlutunum á fyrsta afmæli sonarins en Georg Bretaprins varð eins árs í gær.

Í viðtali við Us Magazine sagði heimildarmaður að Georg Bretaprins mundi fá föt og tréleikföng frá foreldrum sínum á fyrsta afmælisdegi sínum.

Þá segir hann einnig að Vilhjálmur Bretaprins og Katrín hertogaynja af Cambridge vilji ekki ofgera hlutunum en Georg Bretaprins hafi fengið svo margar gjafir síðustu mánuði og það sé ekki til endalaust pláss til að geyma þær.

Afmælinu var fagnað með veislu 20. júlí heima hjá foreldrum Katrínar hertogaynju af Cambridge og önnur veisla var haldin á afmæli hans 22. júlí í Kensingtonhöll í London.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson