Óviss um framhaldið

Katie Price og Kieran Hayler.
Katie Price og Kieran Hayler. Ljósmynd/Instagram

Katie Price segist halda hjónabandi sínu og Kierans Haylers áfram, að því er dagblaðið The Sun greinir frá.

Fyrirsætan viðurkennir að elska enn eiginmann sinn og ætlar að vera áfram með honum á meðan hann sækir meðferð vegna kynlífsfíknar.

Í viðtali við dagblaðið The Sun sagði hún að strax eftir atburðinn hefði hún haft samband við lögfræðing sinn til að fá skilnað en hún hefði nú tekið skref aftur á bak og notaði tímann til að hugsa sig um.

Price segir að samband þeirra hjóna sé ekki enn aftur orðið eðlilegt en hún vilji hugsa allt til enda áður en hún taki ákvörðun um hvort hún skilur við hann eða ekki. Hún segir þau hjónin ekki sofa í sama rúmi né láta þannig að allt sé í góðu.

Fyrirsætan vill eiga barn sitt áður en hún tekur ákvörðun, en hún er ólétt að fimmta barni sínu, öðru barni þeirra hjóna.

Eina ástæðan fyrir því að hún hefur ekki rekið Kieran Hayler á dyr segir hún vera að hún reyni að skilja hvers vegna hann hafi gert henni það sem hann gerði og hvað hann sé að ganga í gegnum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson