Snoop Dogg segist hafa reykt kannabis í Hvíta húsinu í Bandaríkjunum, að því er vefsíða The Independent greinir frá.
Í sjónvarpsþættinum Jimmy Kimmel viðurkenndi rapparinn að hann hefði eitt sinn komist upp með að reykja kannabis innan veggja Hvíta hússins í Bandaríkjunum.
Hann hafi spurt öryggisverði hússins hvort hann mætti fara á salernið og þeir hefðu leyft það. Öryggisverðirnir spurðu hvort hann ætlaði að gera númer eitt eða tvö og hann svaraði tvö. Hann hefði svo logið að þeim að oftast kveikti hann í sígarettu eða öðru til að losna við lyktina en þá hefðu öryggisverðirnir sagt honum að hann gæti vel kveikt í servíettu þegar hann væri búinn.
Servíettan hafi hins vegar verið jóna.
Hvíta húsið í Bandaríkjunum hefur enn ekki staðfest fréttirnar en samkvæmt USA Today heimsótti Snoop Dogg Hvíta húsið í desember síðastliðnum.