Baráttuhópurinn Morality in Media sem berst gegn klámi og öðru, varar við áhorfi á kvikmyndina Fifty Shades of Grey, eða Fimmtíu gráir skuggar.
Hópurinn er vel á verði, en fyrsta stiklan fyrir kvikmyndina birtist í dag.
Dawn Hawkins, talskona Morality in Media, segir kvikmyndina blekkja almenning með því að sýna kynferðisofbeldi eins og hversdagslegan og rómantískan hlut.
Útgáfa bókarinnar um gráu skuggana árið 2011 hlaut einnig mikla gagnrýni frá Morality in Media en bókin fjallar um milljónamæringinn Christian Grey sem dregur hina ungu stúdínu Anastasia Steele á tálar.
Hér má sjá stikluna fyrir kvikmyndina Fifty Shades of Grey.