Shia LaBeouf vill halda sér edrú fyrir Brad Pitt, að því er vefsíða TMZ greinir frá.
Leikarinn er sem stendur í áfengismeðferð og segist vera hræddur um að verða meðleikara sínum í kvikmyndinni Fury, Brad Pitt, til skammar en þeir halda í ferð um heiminn á næstunni til að kynna myndina.
LaBeouf ákvað að hefja áfengismeðferð eftir að hann var handtekinn í New York borg í síðasta mánuði fyrir að hrópa blótsyrði að fólki og slá á rassinn á því eftir leiksýningu.
Talsmaður leikarans sagði hann ekki hafa skráð sig inn á meðferðarstofnun vegna áfengisvanda en hefði hins vegar sjálfviljugur sótt meðferð vegna áfengissýki.
Leikarinn mætir fyrir rétt í þessari viku vegna ákærunnar eftir óspektirnar og slæma hegðun í Studio 54-leikhúsinu í Los Angeles í júní síðastliðnum.
Fjölskylda hans er áhyggjufull vegna hegðunar hans, sérstaklega eftir að hann mætti á blaðamannafund í Berlín vegna kvikmyndarinnar Nymphomaniac með poka á hausnum sem á stóð: „Ég er ekki frægur lengur.“