Gafst upp

Robin Thicke.
Robin Thicke. mbl.is/AFP

Tónlistarmaðurinn Robin Thicke er hættur að reyna að fá fyrrverandi eiginkonu sína, Paulu Patton, til baka, að því er vefsíða TMZ greinir frá.

Thicke segist tilbúinn til að halda lífinu áfram eftir að hafa ítrekað reynt að fá fyrrverandi eiginkonu sína, Paulu Patton, aftur en þau skildu fyrr á árinu.

Patton og Thicke voru gift í átta ár og saman í um 20 ár en nú vinna lögfræðingar að því að skipta fjármunum þeirra og eignum. Þrátt fyrir það er Thicke ekki enn tilbúinn til að skrifa undir skilnaðarpappíra.

Fyrstu merki þess að tónlistarmaðurinn sé hins vegar að komast yfir atburðinn er að þau hafa nú sett heimili sitt á sölu.

Saman eiga þau fjögurra ára son, Julian, en þau hættu saman í febrúar á þessu ári eftir að orðrómur komst á kreik um að Thicke hefði haldið framhjá Patton.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson