Vilja giftast nálægt sjónum

Justin Theroux og Jennifer Aniston.
Justin Theroux og Jennifer Aniston. mbl.is/AFP

Jennifer Aniston og Justin Theroux vilja gifta sig nálægt sjónum, að því er vefsíða Radar Online greinir frá.

Parið byrjaði saman árið 2011 en trúlofaði sig ári seinna og hyggst gifta sig á einkaströnd erlendis í framtíðinni.

Kevin Lee, sá sem skipulagði brúðkaup Aniston og Brads Pitts árið 2000, sagði í viðtali við RadarOnline að Aniston og Theroux vildu gifta sig nálægt sjó og að leikkonan vildi ekki gifta sig í Bandaríkjunum.

Talið er að parið gifti sig á afmælisdegi hans, hinn 10. ágúst, en hann bað hennar einnig á þeim degi. Samband þeirra beið hins vegar hnekki í síðasta mánuði en þau hafa verið í sambandsráðgjöf síðan og segja allt ganga vel. 

Theroux sagði í síðasta mánuði að ástarsamband sitt og Jennifer væri ákaflega gæfuríkt og viðurkenndi að hann gæti ekki ímyndað sér lífið án hennar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler