„Það er ég sem sef hjá honum“

Khloe Kardashian og French Montana eru heitasta parið Vestanhafs í …
Khloe Kardashian og French Montana eru heitasta parið Vestanhafs í dag Mynd/AFP

Khloe Kardashian og rapparinn French Montana eru heitasta parið á stjörnuhimninum þessa dagana. Er það rapparinn og útgefandinn P. Diddy sem á heiðurinn af því að þau hafi kynnst, að sögn Montana. 

Kardashian tjáði sig um sambandið nú um helgina, í fyrsta skiptið opinberlega. Sumir hafa haldið því fram að rapparinn Montana muni hafa slæm áhrif á Kardashian. Khloe er ekki sammála því. „Fólk mun alltaf gagnrýna mig, sama fyrir hvað það er. Ef ég væri að hitta einhvern rólegan, eðlilegan náunga, þá myndi ég líka fá að heyra það. Ef ég skemmti mér með Montana, kemur það engum öðrum við, það er ég sem sef hjá honum en enginn annar,“ sagði Kardashian hlæjandi og bætti við: „Held ég alla veganna.“

Rapparinn French Montana er af marokkóskum uppruna og heitir upphaflega Karim Kharbouch. Hann er þó bandarískur ríkisborgari. Khloe segir hann hafa sýnt sér óþekkta hlið þegar þau kynntust betur. „Hann er einn fyndnasti maður sem ég hef hitt. Ég get oft ekki hætt að hlæja og felli tár úr hlátri. Hann á sér mjög góðar hliðar, en það er lítil áhersla lögð á þær í fjölmiðlum. Hann er svolítið mjúkur,“ segir Khloe í viðtali við útvarpsstöðina Power 105

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant