Breska fyrirsætan Liberty Ross hefur nú skilið við eiginmann sinn, leikstjórann Rupert Sanders, eftir að ljósmynd birtist af honum í innilegum kossi við leikkonuna Kirsten Stewart. Myndin varð einnig til þess að sambandi Stewarts við mótleikarann úr Twilight-myndunum, Robert Pattinson, lauk.
Liberty Ross fær eftir skilnaðinn þrjú af fjórum heimilum hjónanna, 23 þúsund pund á mánuði, 8% af framtíðartekjum hans ef þær fara yfir milljón dollara á ári og meira að segja helming vildarpunkta sem hann fær vegna kreditkortanotkunar.
Ross fékk að vita af framhjáhaldi eiginmanns síns örfáum klukkustundum áður en ljósmyndir af Sanders og Stewart birtust í slúðurtímaritum.