Hringdi á lögregluna

Jenny McCarthy.
Jenny McCarthy. Ljósmynd/Instagram

Sonur Jenny McCarthy, Evan, hringdi á lögreglu á dögunum vegna hegðunar móður sinnar, að því er breska vefsíðan Digital Spy greinir frá.

Fyrrverandi Playboy-fyrirsætan Jenna McCarthy á hinn 12 ára gamla Evan með fyrrverandi eiginmanni sínum, John Asher, en sonurinn hringdi á lögregluna þegar móðir hans var að senda skilaboð í símanum sínum undir stýri.

Í viðtali í útvarpsþættinum Sirius sagði hún frá reynslunni. Hún hafi verið undir stýri og sent skilaboð úr símanum á sama tíma, þá hafi sonur hennar hringt í lögregluna og sagt þeim hvað mamma hans væri að gera.

Til að forðast að komast í kast við lögin hrifsaði McCarthy símann af Evan og henti honum út um gluggann.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Evan hringir á lögregluna vegna hegðunar móður sinnar. Einu sinni hringdi hann á lögregluna vegna þess að hún laumaðist út til að fá sér sígarettu og hann varð hræddur um að hún hefði stungið af.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson