Dóttur Michaels Jacksons hefur verið ráðlagt að tengjast fjölskyldu sinni á ný til að ná bata eftir að hún reyndi sjálfsvíg á síðasta ári, að því er vefsíða TMZ greinir frá.
Í júní á síðasta ári reyndi Paris Jackson að fremja sjálfsvíg og fjarlægðist fjölskyldu sína í kjölfarið. Læknar hafa ráðlagt henni að hafa aftur samband við fjölskyldu sína til að ná hraðari bata en þeir telja að fjölskyldutengslin gætu hjálpað henni.
Paris Jackson er náin móður sinni Debbie Rowe en hefur dvalið í nær eitt ár í heimavistarskóla í Utah-fylki í Bandaríkjunum. Þá hefur henni verið ráðlagt að tengjast systkinum sínum, Prince og Blanket, og ömmu sinni Katherine Jackson á ný.
Paris Jackson ætlar að hætta í heimavistarskólanum og hyggst ekki taka haustönnina en ömmu hennar, Katherine Jackson, líst ekki vel á það og vill að hún haldi áfram skólagöngunni.