Hlakkar til fæðingarinnar

Robert Downey Jr.
Robert Downey Jr. mbl.is/AFP

Robert Downey jr. segist ætla að kaupa mikið af fötum á dóttur sína þegar hún kemur í heiminn, að því er E! News greinir frá.

Hinn 49 ára gamli leikari á von á barni með eiginkonu sinni Susan Levin en barnið á að fæðast í nóvember.

Á Comic-Con-ráðstefnunni í San Diego á dögunum sagðist leikarinn ætla að ausa yfir litlu stúlkuna gjöfum.

Downey jr. er ekki eina Avengers-stjarnan sem eignast barn á árinu því Scarlett Johansson á einnig von á sínu fyrsta barni með unnustanum, Romain Dauriac.

Fyrir á Downey jr. soninn Indio með fyrrverandi eiginkonu sinni, Deborah Falconer. Indio er 20 ára en þau Downey jr. og Falcones skildu árið 2004. Með Susan Levin á Downey jr. svo soninn Exton, sem er tveggja ára.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson