Aðalleikkona Fifty Shades of Grey-kvikmyndarinnar, Dakota Johnson, sást með nýjum manni að því er E! News greinir frá.
Talið er að Johnson sé komin með nýjan kærasta, eða hann Matthew Hill, en þau sáust saman síðasta miðvikudag í New York-borg.
Hill er enskur tónlistarmaður. Johnson virðist hafa slitið sambandi við Jordan Masterson en þau voru saman í september 2013 þegar tökur á kvikmyndinni Fifty Shades of Grey stóðu yfir.
Myndin verður sýnd í íslenskum bíóhúsum í febrúar á næsta ári.