Mættu ekki í brúðkaupið

Beyoncé og Jay-Z.
Beyoncé og Jay-Z. mbl.is/AFP

Getgátur hafa verið uppi um hvers vegna söngkonan Beyoncé Knowles og eiginmaður hennar, rapparinn Jay Z, mættu ekki í brúðkaup Kim Kardashian og Kanye West sem fór fram fyrr á árinu í Flórens á Ítalíu.

Að því er New York Post Page Six greinir frá segir heimildarmaður að stjörnuparinu Beyoncé og Jay Z þótti brúðkaup Kim Kardashian og Kanye West ekki standast kröfur þeirra um almennilega veislu og að það hefði ekki verið nógu dýrt til að þau hefðu getað séð sér fært að mæta.

Heimildarmaðurinn segir að Beyoncé verndi sína stöðu mikið þar sem hún og Jay Z eru talin vinsælasta og áhrifamesta stjörnupar í Hollywood á þessum tímum. Þannig hafi Beyoncé ekki viljað að Kim Kardashian færi fram úr sér. Einnig segir sami heimildarmaður að Jay Z hafi ekki viljað sjá Kanye með Kim Kardashian og segir það slæmt fyrir viðskiptin.

Móðir Kim Kardashian, Kris Jenner, sagði í viðtali við áströlsku útvarpsstöðina  KIIS 106.5 FM að fjarvera Beyoncé og Jay Z hefði ekki skipt miklu máli. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant