Báðir afbrýðisamir

Orlando Bloom og sonur hans Flynn Bloom.
Orlando Bloom og sonur hans Flynn Bloom. mbl.is/AFP

Orlando Bloom sló til Justin Bieber snemma í nótt, að því er TMZ greinir frá.

Pirates of the Caribbean leikarinn Orlando Bloom réðist að Justin Bieber fyrir utan veitingastað á Ibiza eftir að söngvarinn kallaði hann ljótum orðum. Þá voru þeir báðir í veislu sem haldin var á veitingastað á Ibiza en þar voru meðal annars einnig þau Paris Hilton og P.Diddy.

Á myndskeiði sem TMZ vefsíðan hefur yfir höndum sér má sjá þar sem Justin Bieber hrópar að Orlando Bloom. Justin Bieber náði að komast undan höggi Orlando Bloom en yfirgaf veitingastaðinn fljótt eftir það þar sem veislugestir byrjuðu að klappa fyrir Orlando Bloom fyrir atvikið.

Óvíst er hvers vegna slagsmálin byrjuðu á milli þeirra tveggja en talið er að Justin Bieber hafi verið að hitta fyrrverandi eiginkonu Orlando Bloom, Miröndu Kerr, en saman eiga þau Orlando Bloom þriggja ára gamlan son.

Orlando Bloom og Miranda Kerr hættu saman í október á síðasta ári. Justin Bieber er hins vegar ekki sá eini seki en Orlando Bloom sást á dögunum snæða kvöldverð með fyrrverandi kærustu Justin Biebers, Selenu Gomez.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson